Ég bloggaði ekkert því ég þurfti að gera eitthvað til að fara inn á nýja bloggerinn og hélt það væri eitthvað voða flókið. Svo tók það enga stund þegar upp var staðið.
Ég ætla að blogga nokkur orð núna því annars gleymi ég þessu.
Laddli = froskur
Nín = svín
Nón = ljón
Jittabau = ristað brauð
Nennibaut = rennibraut
Oppdeþþ = upstairs
Heida gó bíb = Heiða go sleep
Dulla = dugleg
Pöú = Pó (úr stubbunum) með breskum hreim
Notar fleirtölu fyrir nokkur orð
Segir langar næstum fullmyndaðar setningar.
Fallbeygir helling
Erum að fara að flytja í byrjun maí.
Eyrún/Björn Óðinn. Þið eruð velkomin í byrjun júlí, hringi í þig fljótlega Bjössi eða reyni að hitta á ykkur á msn.
Og að lokum, afmælisstelpa og litli bróðir (baba minn)
Hún fékk dúkku í afmælisgjöf
Hann fékk kærustuna sína í heimsókn.
Ég bið fyrir þeim sem eiga í sálarstríði.
Lovjúol,
Góða skemmtun í flutningunum. (Æl)
SvaraEyðaVar að fatta að í ár er fyrsta árið sem ég flyt ekkert frá 1998. En það er eina árið sem ég hef ekkert flutt frá því að ég flutti að heiman, 1993.
Oj.
Takk fyrir það, hlakka ofur mikið til að sjá ykkur.
SvaraEyðaGaman að sjá myndir af krílunum.
Bestu kveðjur,
Eyrún
Elska ykkur endalaust mikið.
SvaraEyðaÉg hlakka svo ofsalega mikið til aað koma út og hitta ykkur. Það er svo langt síðan við sáumst síðast.
Ég tek höndum saman með þér í bæn fyrir þeim sem í sálarstríði eiga.
Lúv'ya
Þetta var ég - Berglind systir
SvaraEyðaGaman, gaman! Til hamingju með afmælið og allt hitt. Jeij! Oh... mig langar líka í heimsókn. Getum við ekki bara hist í Berlín í sumar??? Af hverju getur ekki bara allt verið í einu og sama útlandinu???
SvaraEyða...knús!
Reyndu að sogast inni í þessa vídd aftur. Mér lýst ekkert á þetta.
SvaraEyðasvandís, ó svandís...
SvaraEyðaÉg vona að þeir hafi ekki breytt þér í Breta og sent þig í friðargæslu til miðausturlanda.
SvaraEyðaEn annars ertu alltof sæt til þess að verða nokkurntíma Breti. Þú ert náttúrulega íslenzkt megabeib eins og þau gerast flottust og frægt er um allan heim.
Komdu samt aftur inn í bloggheima, annars er maður barasta skíthræddur um þig.
Blogger segir fnipgac , það gæti verið töfraorðið sem galdrar þig til baka.
Elska þig alltaf svo heitt...