apríl 26, 2007

Jæja, ég er komin úr hinni víddinni. Þar var nú aldeilis gaman að vera. Heiða systir kom meira að segja að heimsækja mig og við héldum afmælisveislu fyrir litlu Heiðu.

Ég bloggaði ekkert því ég þurfti að gera eitthvað til að fara inn á nýja bloggerinn og hélt það væri eitthvað voða flókið. Svo tók það enga stund þegar upp var staðið.

Ég ætla að blogga nokkur orð núna því annars gleymi ég þessu.
Laddli = froskur
Nín = svín
Nón = ljón
Jittabau = ristað brauð
Nennibaut = rennibraut
Oppdeþþ = upstairs
Heida gó bíb = Heiða go sleep
Dulla = dugleg
Pöú = Pó (úr stubbunum) með breskum hreim

Notar fleirtölu fyrir nokkur orð
Segir langar næstum fullmyndaðar setningar.
Fallbeygir helling

Erum að fara að flytja í byrjun maí.

Eyrún/Björn Óðinn. Þið eruð velkomin í byrjun júlí, hringi í þig fljótlega Bjössi eða reyni að hitta á ykkur á msn.

Og að lokum, afmælisstelpa og litli bróðir (baba minn)













Hún fékk dúkku í afmælisgjöf













Hann fékk kærustuna sína í heimsókn.

Ég bið fyrir þeim sem eiga í sálarstríði.

Lovjúol,

8 ummæli:

  1. Góða skemmtun í flutningunum. (Æl)
    Var að fatta að í ár er fyrsta árið sem ég flyt ekkert frá 1998. En það er eina árið sem ég hef ekkert flutt frá því að ég flutti að heiman, 1993.
    Oj.

    SvaraEyða
  2. Takk fyrir það, hlakka ofur mikið til að sjá ykkur.
    Gaman að sjá myndir af krílunum.

    Bestu kveðjur,

    Eyrún

    SvaraEyða
  3. Elska ykkur endalaust mikið.

    Ég hlakka svo ofsalega mikið til aað koma út og hitta ykkur. Það er svo langt síðan við sáumst síðast.

    Ég tek höndum saman með þér í bæn fyrir þeim sem í sálarstríði eiga.

    Lúv'ya

    SvaraEyða
  4. Þetta var ég - Berglind systir

    SvaraEyða
  5. Gaman, gaman! Til hamingju með afmælið og allt hitt. Jeij! Oh... mig langar líka í heimsókn. Getum við ekki bara hist í Berlín í sumar??? Af hverju getur ekki bara allt verið í einu og sama útlandinu???
    ...knús!

    SvaraEyða
  6. Reyndu að sogast inni í þessa vídd aftur. Mér lýst ekkert á þetta.

    SvaraEyða
  7. svandís, ó svandís...

    SvaraEyða
  8. Ég vona að þeir hafi ekki breytt þér í Breta og sent þig í friðargæslu til miðausturlanda.

    En annars ertu alltof sæt til þess að verða nokkurntíma Breti. Þú ert náttúrulega íslenzkt megabeib eins og þau gerast flottust og frægt er um allan heim.

    Komdu samt aftur inn í bloggheima, annars er maður barasta skíthræddur um þig.

    Blogger segir fnipgac , það gæti verið töfraorðið sem galdrar þig til baka.

    Elska þig alltaf svo heitt...

    SvaraEyða