ágúst 14, 2007

Um daginn hækkaði hamingjustuðullinn í lífi mínu umtalsvert þegar ég fann risastóran stauk af season all kryddi úti í búð. Án þess hef ég þurft að elda í þrjú ár núna. Það er náttúrlega ekki hægt.

4 ummæli:

  1. Nú fæ ég samviskubit yfir að nota aldrei season all sem ég þó á nóg af.

    SvaraEyða
  2. Þjáningarsystir! Við svíarnir vorum einmitt að klára risastaukinn sem við keyptum í síðustu Íslandsferð, argh!

    p.s. börnin þín eru algerar dúllurúsínur :)

    SvaraEyða
  3. Ég man gleðina þegar ég uppgötvaði að það var til aromat í kaupfélaginu í Frakklandi! Börnin þín eru ofsalega mannaleg og flott. Innilega til hamingju og gott að heyra að þið búið í bullandi hamingju!

    SvaraEyða
  4. ég fann dót á netinu sem minnti mig bara á þig, hlekkur á síðunni minni. sakna þín alveg fullt, stefni að heimsókn til þín í vetur.

    SvaraEyða