Að flytja til Íslands er góð skemmtun. En kostar maaaarga peninga. Til dæmis kostar það okkur 350 þúsund kall að fá að eiga bílinn okkar áfram á Íslandi. Og það kostar okkur 125 þúsund kall að senda hann heim *yfirlið*. Svo kostar annan 350 þúsund kall að flytja búslóðina heim. Bless milljónkall.
Ble ble ble,
Passaðu bara að halda þessu öllu í íslenskum krónum... þá er þetta ekki neeeeeitt!
SvaraEyðaþað er nóg af fínu húsnæði til leigu í mosó núna, ég hlakka til að fá ykkur í nágrennið....:Þ
SvaraEyðaMosó er ekki inni í myndinni. Allt of langt úti í buskanum. Langar mest að vera í Kópavogi eða Garðabæ. En það er nú allt nágrenni á íslandi er það ekki?
SvaraEyðaÉg tímamældi einu sinni hvað maður var lengi að keyra úr miðbænum út á Álftanes, reyndar í engri umferð á sunnudegi. Það voru einar 20 mínútur. Samt er Álftanes ótrúlega langt úti í sveit.
SvaraEyðaJú, það er allt nágrenni á Íslandi.