júní 30, 2006

Í morgun vorum við að borða jógúrt og Heiða var mikið að skoða jógúrtdolluna og snúa henni milli handa sér. Alltaf benti hún á sömu myndina og ég sagði henni að það væri API á myndinni. API. Hún reyndi nokkrum sinnum að segja api og tókst bara ansi vel upp en svo allt í einu varð hún mjög hugsi, horfði lengi á myndina og leit svo á mig með sitt blíðasta bros, benti á myndina og sagði MAMMA.

Hrmpf.

4 Ummæli:

Þann 30/6/06 14:41 , Blogger Berglind Rós sagði...

Æ sætust er hún :-) Mér finnst bara krúttlegt að vera líkt við apa, það er verra þegar maður fær að heyra að maður sé ömurlegasta mamma í heimi... En stundum er maður líka besta mamma í heimi svo það kemur á móti :-)

 
Þann 30/6/06 20:11 , Blogger Spunkhildur sagði...

ÉG MEINA... Hvað var Skralli gamall þegar hann setti fram þróunarkenninguna? Hún búin að fatta þetta strax!!!

Snillingur, það er það sem hún er...

 
Þann 10/7/06 12:12 , Blogger Þórunn Gréta sagði...

Gaman að lesa um lífið í Englalandi. Ég hafði nú minnstar áhyggjur af bókunum þínum, ég lofa að koma þeim fyrir á góðum stað :)

 
Þann 10/7/06 20:27 , Blogger fangor sagði...

tíhí. mig langar að sjá óléttumyndir af þér ástkær...

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim