maí 16, 2009

Ég er að spá í að blogga einhverntíman aftur.

mars 09, 2009

Mínar innilegustu samúðaróskir til allra aðstandenda Hákons Aðalsteinssonar. Þar kveður einstakur maður og voru það mikil forréttindi að fá að kynnast honum á menntaskólaárunum.

Hvíl í friði Hákon.

febrúar 04, 2009

Heiða skáldar lög og texta sem hún syngur jafn óðum. Nú semur hún líka ljóð. Hún samdi þetta fyrir nokkrum dögum.

Það er snjór og það eru jól.
Það er snjór og það er kalt.
Það er snjór og það er hvítt.
Það er súrmjólk.

desember 19, 2008

Jólalag baggalúts minnir mig á Ástu Gísla og Siggudís. Fleiri orð verða ekki um það höfð.

Komin heim í 10 stiga frostið :)

Atvinnumál í uppnámi
Húsnæðismál í uppnámi
Þór með eyrnabólgu

En við hlökkum samt bara til jólanna. Þetta reddast allt :)

nóvember 28, 2008

Húsnæði svo gott sem í höfn.
Skriður kominn á atvinnumálin.
Leikskólavist líkleg ekki seinna en febrúar.
Gámur bókaður.
Bíll í alsherjar yfirhalningu fyrir veturinn.

Þetta er bara allt að koma, þarf bara að koma út blessuðu húsinu í Frakklandi.

Ble ble ble,

nóvember 26, 2008

Ég er komin með krónískan kvíða stress áhyggju spennings tilhlökkunarhnút í magann.

Förum við á hausinn á þessu ævintýri öllu saman eða fæ ég einhverntíman eitthvað að gera.

Bara að blessað litla húsið í Frakklandi seldist. Þá myndum við anda tvöhundruðogfimmtíuþúsundkalli léttar á mánuði (miðað við gengi dagsins í dag).

Langar einhvern í hús í suður-Frakklandi? Tombóluverð !

nóvember 25, 2008

Og meira af tali.

Heiða er farin að nota ýmis orðatiltæki og málvenjur en ruglar því stundum. Í kvöld var til dæmis grenjandi kalt í húsinu og svo hefur hún líka verið steinheppin.

Ble ble ble,