nóvember 30, 2007

Smá hugleiðing frá Heiðu:
Sko. Mamma er kona, pabbi er maður, Þór er eins árs og Heiða er best.

Og smá hughreysting frá Heiðu (við vorum að fara að sofa og ég lá hjá henni).
Hún var alveg að sofna þá reis hún upp til hálfs, lagði handlegginn um hálsinn á mér, kyssti mig á kinnina og sagði: Þetta er allt í lagi mamma mín, Heiða passar þig. Svo lagðist hún á koddann og sofnaði.

Ble ble ble,

nóvember 29, 2007

Haba haba súbb súbb
Heba heba sabb sabb
Namm namm
Haba haba súbb súbb
Heba heba sabb sabb
Namm namm

Úeba Úeba
Ahaba úeba
Namm namm
Úeba Úeba
Ahaba úeba
Namm namm

nóvember 27, 2007

Þegar þetta ár verður á enda runnið verða allir fjölskyldumeðlimir mínir búnir að heimsækja mig, meira að segja öll systkinabörnin og líka nýjustu viðhengin. Þið eruð yndisleg og góð.

nóvember 26, 2007

Ora fiskibollur í tómatsósu og soðnar kartöflur í matinn. Einu sinni voru fiskibollur og saltfiskur uppáhalds maturinn minn. Fiskibollurnar eru ekki eins góðar og mig minnti en ágætar samt. Vantar samt splunkunýjan þrumara og þykkt lag af smjöri með.

Góðan daginn.

Allt gott að frétta héðan. Nóg að gera til að halda okkur við efnið. Snærún er í heimsókn. Það er yndislegt að hafa hana hjá okkur.

Ég á bestu fjölskyldu í heimi.

Ble ble ble