nóvember 28, 2008

Húsnæði svo gott sem í höfn.
Skriður kominn á atvinnumálin.
Leikskólavist líkleg ekki seinna en febrúar.
Gámur bókaður.
Bíll í alsherjar yfirhalningu fyrir veturinn.

Þetta er bara allt að koma, þarf bara að koma út blessuðu húsinu í Frakklandi.

Ble ble ble,

13 Comments:

Blogger Spunkhildur said...

Ég er að rembast við að síkrita þetta yfir þig.

28/11/08 16:50  
Blogger Svandís said...

Takk elskan. Það er greinilega að skila sér :D

28/11/08 17:20  
Anonymous Heiða sys said...

Jibbí kóla! Ég hlakka til :)

30/11/08 14:40  
Blogger Sigga Lára said...

Ég væri alveg til í að síkrita húsið í Frakklandi yfir í mína eigu... Bara smávægilegir fjárhagslegir fyrirmunir við það. Verða samt örugglega meiri eftir að þeir sökkva krónunni.

Blogger segir pallyinn!

30/11/08 15:42  
Blogger fangor said...

jibbíkóla! hvar ætlið þið svo að eiga heima?

30/11/08 22:45  
Blogger Svandís said...

Við verðum trúlega efstastast í Árbænum. Kemur endanlega í ljós á allra næstu dögum.

1/12/08 01:09  
Blogger fangor said...

hei, alveg í nágrenni við mig. frábært, eða barana! eins og blogger segir

1/12/08 14:53  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ elskan, mikið verður gott að geta hringt í þig þegar maður á leið í bæinn og heimta einn kaffibolla - og hvernig væri svo að endurvekja hitting við ykkur allar hinar! Ha! Maður er alltof latur að rækta vini sína. Það verður nýársheitið. Og þið sem viljið fornfáleg jól við kertaljós og verðið á ferðinni fyrir austan - ég og familían verðum í Skálanesi frá 20. des til 3. jan! Með kannski smá útúrdúrum ef við verðum að mæta í jólaboð. En helst viljum við vera útfrá - og vinir og velunnarar velkomnir!
Bkv.
Rannveig

2/12/08 00:00  
Blogger Sigga Lára said...

Já, það er ekki mikill tími fyrir annað en barnavesen þessi árin. Ég var til dæmis á Egilsstöðum í tvo mánuði síðasta sumar og hitti Rannveigu aldrei nema á einum Glettingsfundi. En ég er að vona að þetta komi aftur svona uppúr fimmtugu. ;-)

En, já, verum samt duglegar að drekkja Svandísi félagssveltu í félagslífi og uppákomum, með og án fjölskyldu, eftir áramót! Ég reyni líka að standa mig. Bæta fyrir að hafa skilið hana eftir í Montpellier.
;-)

(Bið að heilsa Jónatani.)

3/12/08 11:18  
Blogger fangor said...

allir í kaffi hist og her. kominn tími á það. börnin geta dundað meðan við drekkum kaffi.

9/12/08 18:52  
Anonymous Lilja Björk said...

Til hamingju með nýju áfangana í lífi þínu.
Kveðja Lilja Björk og rest

13/12/08 12:05  
Blogger Sigga Lára said...

Kominn 16. Ertu þá að koma á morgun?
Síkrita í alla nótt.

16/12/08 23:46  
Blogger Siggadis said...

Jæja, komin 19...

19/12/08 11:52  

Sendu inn athugasemd

<< Home