nóvember 26, 2007

Ora fiskibollur í tómatsósu og soðnar kartöflur í matinn. Einu sinni voru fiskibollur og saltfiskur uppáhalds maturinn minn. Fiskibollurnar eru ekki eins góðar og mig minnti en ágætar samt. Vantar samt splunkunýjan þrumara og þykkt lag af smjöri með.

2 Ummæli:

Þann 26/11/07 13:22 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Mmmmm, nú langar mig í Ora fiskibollur og þrumara úr bakaríinu á Ígel.

 
Þann 26/11/07 14:32 , Blogger Ásta sagði...

Ég hef nú aldrei skilið aðdráttaraflið við fiskibollurnar (nema hugsanlega þeim væri drekkt í karrísósu) en þrumari með smjöri er klassík.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim