maí 30, 2008

Við erum að fara í sumarfrí. Komum aftur 9. júní. Jei.

Ble ble ble,

maí 24, 2008

Jæja, nú verðið þið öll að kjósa England. Ég á ekki von á öðru en að það verði aftur kosið 30 sinnum á þessu heimili í kvöld.

Koma svo Ísland :)

Ble ble ble,

maí 22, 2008

Það er allt Jonathan að þakka að Ísland komst áfram í Júró. Hann kaus 30 sinnum þessi elska.

Ble ble ble,

Heimþrá ehf. Ég verð bara klökk. Þau eru yndi.

A good start. I can smell the Eurovision here. We like it.

Kommentin frá BBC.

Mig langar í júróvisjon partý.

Ble ble ble,

Sumar og sól og blíða. Enska sumarið er hreint út sagt yndislegt. Vika í sumarfrí. Get ekki beðið. Hef ekki hlakkað svona mikið til nokkurs hlutar í mörg mörg mörg ár. Jah, nema kannski þess að fæða börnin mín.

Kveðja

maí 20, 2008

Ég er hálf veik af ógeði.

Í Bretlandi eru lögleg mörk fyrir fóstureyðingar 24 vikur. Eftir 12 viku og fram að þeirri 20ustu er fóstrið og allt því fylgjandi dregið út með töngum. Eftur 20ustu viku þarf fyrst að sprauta fóstrið til að stöðva hjartsláttinn, svo er allt dregið út einhvernvegin. Ég man mjög vel tilfinninguna þegar ég var komin 24 vikur á leið.

Þetta er algjör viðbjóður. Mig langar bara að gráta.

maí 05, 2008

Getur einhver lánað mér milljón? Svona einhverntíman með haustinu. Helst vaxtalaust og án afborgana næstu fimm árin.

Með fyrirfram þökk fyrir frábærar undirtektir,