Hæ
Það gladdi mig mjög að finna þetta blogg og allar skemmtilegu minningarnar á því :)
Það er ótrúlega gaman í bókasafnsfræði. Nú get ég orðið eins og Giles.
Í dag:
Lilja fjögurra mánaða.
Pabbi 68 ára.
Jonathan búinn að vinna í 12 ár hjá DELL.
Ég mundi eftir blogginu mínu.
Skyldi einhverntíman einhver sjá þetta?
Ég er að spá í að blogga einhverntíman aftur.
Mínar innilegustu samúðaróskir til allra aðstandenda Hákons Aðalsteinssonar. Þar kveður einstakur maður og voru það mikil forréttindi að fá að kynnast honum á menntaskólaárunum.
Hvíl í friði Hákon.
Heiða skáldar lög og texta sem hún syngur jafn óðum. Nú semur hún líka ljóð. Hún samdi þetta fyrir nokkrum dögum.
Það er snjór og það eru jól.
Það er snjór og það er kalt.
Það er snjór og það er hvítt.
Það er súrmjólk.