Ég get ekki sofið og hvað er þá betra en að taka alvitur netspekipróf. Brjóstaprófið góða varð fyrir valinu í þetta skiptið.
Your Boobies' Names Are: Dessert and Dinner
|
Kannski ekki ennþá, en eftir nokkra mánuði ;)
Og að lokum:
Hvað á barnið að heita? Einey Grélöð.
HVAÐERAÐÞESSARIÞJÓÐAÐLEYFASVONANÖFN !!!
Vi ses,
Buhu - ég er alein heima í marga daga. Það stefnir því allt í ofurprjónaskap eða hekl. Ég er næstum hálfnuð með heklað teppi og svo veit ég ekki hvað ég á að prjóna næst. Kannski bara sokka handa Aðalbirni (ef ég get rifjað upp hvernig maður prjónar sokka...)
Venlig hilsen,
Leidís end djentilmen, I hevv an annánsment tú meik...
Við hjónaleysin eigum von á barni þann 22. apríl 2005. Það þýðir að ég er í þrettándu viku óléttu núna. Krílið er u.þ.b. 6 sentimetrar og það framleiðast 1.000 nýjar heilafrumur í það á mínútu. Við erum yfirmáta spennt og hamingjusöm yfir þessu öllu saman og hlökkum rosa mikið til að takast á við þetta. Ég er búin að endurnýja kynni mín við prjóna og heklunálar og sit nú sveitt við að rifja upp gamlar aðferðir.
Lifið heil :)