Smá myndablogg á miðvikudegi. Jonathan fór til Írlands í byrjun október og þá fór ég með krakkana í sumarhúsagarð og myndirnar eru allar teknar þar nema sú efsta.
Gaman á hvolfi
Heiða og Doddi uppáhalds.
Þór og herra Sæll.
Hvar er svo maturinn? Við erum svöng.
Þvílíkt stuð á diskóteki. Heiða elskar að dansa.
ble ble ble,
Ekkiland
október 24, 2007
október 23, 2007
Í gær kvöddu þennan heim tvær manneskjur sem eiga stóran stað í hjarta mínu. Yndislegt og einstakt fólk. Móðurbróðir minn, Birgir Björgvinsson og hún Lára Kjerúlf. Hvíl í friði.
október 17, 2007
október 07, 2007
Núna áðan:
Heiða: Mamma, nóttin er komin.
Mamma: Ha, nei. Ekki alveg (klukkan var hálf sjö), en bráðum.
Heiða: Jú víst. Sjáðu bara (bendir á gluggann). Það er alveg dimmt (sem var alveg rétt hjá henni).
Mamma: Jæja, eigum við þá að fara að fá mjólkina.
Heiða: Já, og dudduna og bolina.
Mamma: Biddu pabba þinn að finna dudduna og bolina.
Heiða: Já, ég skal gera það. Ég ætla að fara að frekjast og tuða í pabba.
Ble ble ble,

október 06, 2007
Jæja, komin heim. Fríið var frábært. Skemmtilegur staður sem við vorum á. Nóg að gera fyrir börnin. Bleikir fílar og bangsar í skotapilsum, Tígrisdýr sem spiluðu á gítar og sungu. Föndur og sögur í hádeginu og leiksýning eða diskótek á kvöldin. Sundlaug og róló og innileiksvæði. Og svo náttúrlega ótrúlegt magn af spilakössum, bílum og tækjum þar sem maður getur unnið bangsa með því að færa til nokkurs konar krana og svo þarf að reyna krækja í bangsann. Snærún ætti bara aðkoma þarna. Hún gæti eflaust unnið fleiri bangsa en ég. Bangsanáítækin eru voða vinsæl og gaman að fylgjast með eftirvæntingunni í augum barnanna á meðan kraninn er á ferð og svo vonbrigðunum þegar krókurinn kemur tómur upp eða þá gleðinni þegar nýr bangsi birtist. Áhyggjur mínar af veðrinu voru ástæðulausar. Hitinn var á bilinu 18-22 stig og engin rigning. Einn daginn var meira að segja ekki ský að sjá á himni og þá hefði vel verið hægt að leggjast í sólbað. Yndislegt haustveður :)
Læt fylgja með myndir síðan í sumarfríinu í ágúst.
Mmmmm. Mig langar líka í ís?
Við fórum í strætó. Það var svo gaman og spennan svo mikil að eftir smá akstur steinsofnuðu þau bæði.
Systkinin fengu að sofa í sama rúmi og það gekk bara rosa vel.
Við fórum í sund og það var ekkert smá vinsælt. Algjört vatnadýr hún Heiða Rachel.